Nú er aldeilis líf og fjör fyrir austan.
Kappklæddar löggur að sunnan í hrókasamræðum við annan hvern mann.
Fréttamenn og blaðaskunkar flykkjast að og mynda hvern krók í bak og kima í fyrir.
Pönnukökupönnur og kaffikönnur anna varla eftirspurn.
Höfnin í Neskaupstað iðar af mannlífi - og öll þjóðin að pissa í sig af spenningi.
Hver myrti hvern - og hvers vegna?
Alveg er það magnað að það þurfi lík til að vekja heilt bæjarfélag frá dauðum.