Lesbók18.12.03 — Enter

Detti mér nú allar dauðar lýs úr höfði!

Stígur nú ekki ljóti andarunginn, svínahirðirinn sjálfur, upp úr forinni og plantar sér meðal helstu seljabrytja heimsins?

Skáskýtur sér kjagandi í hóp fagurlimaðra svana á borð við Davíð Beckham og önnur skrauthænsn.

Svei mér ef hárklepruðum hamborgararassinum hefur ekki tekist að tylla sér án fyrirhafnar í fimmtugasta og fyrsta sæti yfir áhrifamestu tískumógúla samtímans, saxneskra.

Jahá! Maður þarf augljóslega ekki að þvo sér um hárið til að gerast tískudrós í heimi viðskiptanna.

 
Kaktuz — Saga
 
Kaktuz — Sálmur
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Fannar Númason Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
        1, 2, 3 ... , 180, 181, 182