Lesbók24.11.03 — Númi Fannsker

Laugarásbíó býr yfir einhverjum einkennilegum sjarma, það hefur aldrei dottið í flottheitasúpuna sem t.d. Sambíóin hafa gert að sínu aðalsmerki. Það hefur einhvernveginn fest sig í sessi sem 'hitt bíóið'. Þegar ég steig inn á karlasalernið í Laugarásbíói í gærkvöldi rifjaðist upp fyrir mér að ég steig inn á þetta sama salerni fyrir 20 árum síðan. Það var í hléi og kvikmyndahúsið var troðfullt af fólki sem komið var saman til að sjá litla stúlku kyssa glófingraða geimpjakkinn E.T. bless.

Nú 20 árum og nokkrum áfengis- og lyfjameðferðum síðar er þessi sama stúlka aftur á stóra tjaldinu í Laugarásbíói. Í kvikmyndinni Duplex.

Kvikmyndina þá gerir dvergvaxni skallabelgurinn Danny Devito. Í myndinni leitar hann á kunnugleg mið, en henni svipar nokkuð til fyrri verka hans Throw momma from the train og War of the Roses, þar sem býsna 'eðlilegt' fólk lætur annað 'eðlilegt' fólk taka sig á taugum þar til varla stendur steinn yfir steini.

Þetta gerir Danny Devito nokkuð vel, a.m.k. tekst honum að gera vingjarnlegu eldri konuna sem býr á hæðinni fyrir ofan þau Ben Stiller og litlu stúlkuna úr E.T. að óþolandi kerlingarskari - og í rauninni að réttdræpu skrímsli.

Leikur er allur til fyrirmyndar og rás atburða sæmilega áhugaverð, þó aðeins hægist á um miðbik myndarinnar. Það eru nefnilega takmörk fyrir því hvað ein gömul kona getur valdið miklum usla.

Einn löstur er á þessari annars ágætu gamanmynd. Hún er bara ekki nógu fyndin. Vissulega hló ég og sú gamla gat verið bráðfyndin í ótuktarskap sínum, en einhvernveginn reis grínið hæst þegar fólk var að detta á rassinn og sprengja sig í loft upp - enda leikur prýðisgóður sem fyrr segir. Hinsvegar skorti nokkuð á að samtöl og sjálf framvindan næði að hlægja mig að einhverju ráði.

Þrátt fyrir allt er myndin ágætisskemmtun og ekki verra gláp en hvað annað, svo er líka alltaf gaman að koma í 'hitt bíóið'.

 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Spesi — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
     1, 2, 3 ... 180, 181, 182