Lesbók12.11.03 — Dr. Herbert

Brá mér um helgina á alíslenskt bjórkvöld í miðbæ Lundúna. Allt er nú til. Þetta var á heildina prýðisskemmtun að íslenskum sið. Einar Ágúst og Gunni Óla, Skítamóralsbræður, héldu uppi stemmningu með söng og gleði langt fram á nótt (nóttin byrjar uppúr ellefu á kvöldin hér á Bretlandseyjum).
Mikið eru þeir yndislegir og alþýðlegir þessir drengir. Guð blessi þá og fjölskyldur þeirra.

Þarna stungu saman nefjum námsmenn, fyrirmenni, atvinnumenn í knattspyrnu og útlendingar í leit að Hófí og Lindu P. Það var hlegið og grátið, gubbað og káfað, sveitaballastemmning á götum Lundúna í fyrsta og vonandi ekki síðasta sinn.

Húrra fyrir góðu kvöldi.

 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
        1, 2, 3, ... 180, 181, 182