Nú þegar Liechtenstein er komið upp á kant við Evrópusambandið er gullið tækifæri fyrir Íslendinga að ganga á lagið og mynda löngu tímabært hernaðarbandalag með Liechtenstein, Færeyjum og Írlandi.
Með yfirburðarstöðu Liechtenstein á sviði tannhirðu, írskri þjóðlagahefð og einokun Færeyinga á skerpukjötsmarkaði (svo ég tali nú ekki um allt bensínið þeirra) - ásamt íslensku hugviti og útsjónarsemi gætum við hæglega knúið Breta og Dani til uppgjafar - náð hagstæðum samningum við brusselíska keisaradæmið - og reist viðskiptaveldi sem ætti sér ekki hliðstæðu í sögunni.
Ég er sannfærður um að Mónakó vill vera með - og jafnvel Kristjanía.