Forystugrein – Enter
Enter

  • Sækið nýtt stuðningslag Baggalúts - ÁFRAM ÍSLAND!
  • Brennið allar gular, svartar og rauðar flíkur sem þið eigið - sérstaklega ef þær eru í tveimur eða fleiri af þessum litum.
  • Skrópið í þýskutímum.
  • Kastið eggjum og skemmdu grænmeti að höfuðstöðvum þýsk-íslenska.
  • Brennið verk þessara höfunda: Goethe, Bertolt Brecht, Richard Wagner, Marlene Dietrich, Albert Einstein, Claudia Schiffer.
  • Kaupið upp allan þýskan bjór í landinu og hellið honum niður.
  • Gangið eingöngu í heiðbláum fötum.
  • Lærið stuðningslag Baggalúts utanbókar og flytjið fyrir vini ykkar og ættingja.

Fréttir
Enter – 3/6/13
 
Númi Fannsker – 28/5/13
 
Útgáfa
Lesbók frá fyrri tíð

Nú þyki ég ekki maður umburðarlyndur. Raunar gengst ég upp í því að vera fordómafullur og rækta með mér andúð á ýmsum mismerkilegum fyrirbrigðum, má þar nefna „list“, „stjórnmál“ og „trú“. Ef satt skal segja þykir mér í raun dálítið vænt um fordómana mína óígrunduðu og hef hlúð að þeim gegnum tíðina, en það gerir maður einkum með því að forðast að kynna sér hinar ýmsu hliðar mála og skoða helst ekkert ofan í kjöl.

Eins hef ég oft haft lúmskt gaman að fordómum annarra, kreddum og ofstæki. Sér í lagi þó tiktúrum annarra þjóða, hæfilega langt frá Íslandsmiðum til að snerta mig beinlínis. Það er best.

Og nú er gósentíð.

Eins og lýð er ljóst tóku danskir skrípóteiknarar sig til á haustmánuðum og rissuðu upp spámanninn geðþekka, Múhameð. Frábært framtak auðvitað, fodómafyllt níð um átrúnaðargoð milljóna, sem í ofanálag er bannað að birta myndir af. Fullkomið. Algerlega upp öngstrætið á mér.

Ekki nóg með það. Allur hinn íslamski heimur trompast. Sturlast gersamlega. Út brýst uppsafnað hatur á Vesturlöndum öllum. Kókakólaflöskur eru mölvaðar á götum úti. Danskt smjör er brætt yfir hægum eldi. Fordómarnir fá að grassera og læsa klóm og kjafti í hvað sem fyrir verður. Dásamlegt.

Svo er vitanlega kveikt í nokkrum fánadulum, í hefndarskyni. Því fátt þykir okkur hér vesturfrá ömurlegra, lítilmótlegra. Hugsið ykkur bara - spangólandi Indónesar sem aldrei hafa heyrt á A-HA minnst hoppandi skríkjandi af gremju á norska fánanum, skíðlogandi. Fordómar? Ójá.

Nú bíður maður bara spenntur fyrir framan sjónvarpið eftir að kveikt verði í einhverju meira krassandi, t.d. í nokkrum vel völdum sendiráðum - eða jesúlíkneskjum. Svo styttist nú í að fjörugustu múslimunum verði vísað úr landi - best ef það yrði Frakkland auðvitað - þar eru þeir orðnir mest pirraðir. Þá verður fyrst fjör. Þá erum við jafnvel að tala um sprengingar. Vúhú!

Svo vonar maður bara að enginn gefi eftir, sem er raunar ólíklegt. Við þurfum auðvitað að vernda blessað tjáningarfrelsið okkar, skárra væri það nú. Og múslimarnir fara nú varla að breyta þessri fínu teiknilöggjöf úr þessu.

---

Vona samt að þetta nái ekki hingað til lands. Eitthvað svona vesen. Mér leiðist nefnilega vesen. Ég þoli það ekki.

Enter 3/2/06
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Sálmur
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
        1, 2, 3, 4 ... 88, 89, 90  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA