Lesbók29.01.03 — Enter

Svo ég komi mér beint að efninu: Ég vil stífla allt helvítis heila klabbið.

Ég skal stoltur þruma það yfir hverjum sem er og standa við það - Ég vil stíflu. Ég vil stóra, mjólkurhvíta, alltumlykjandi, stórfenglega stíflu. Ég vil drekkja grálitum, kagdrituðum klettasnösum í ólgandi, hvítfyssandi vatni. Það er eitthvað til að dást að. Eitthvað til að stæra sig af - annað en hin margmærða og óspjallaða íslenska náttúra.

Hvurn fjárann á að gera við alla þessa náttúru? Góna á hana til eilífðarnóns? Yrkja henni kvæði? Míga til himins, henni til dýrðar? Mér er til efs að aðrir en fáeinir blánefjaðir, lopavafðir túristar, sem villst hafa fyrir misskilning þarna austur á mela, hafi yfirleitt séð þessa óborganlegu klettarauf, sem allir elska nú meir en lífið sjálft. Þeim má vera sama þó hún hverfi undir vatn - enda hvorteðer mestallt Þjóðverjar - vanir vonbrigðum.

Ég á í munnsöfnuði mínum ýmis vel valin orð um þá sísífrandi múlasna sem skýla sér bak næfurþunnum merkjum umhverfisverndar. Ég mun ekki nota þau hér, en við þessi æxli mannlífsins vil ég segja: Haldið þið virkilega að það augnablikshik á slóð tímans sem mannkynið fær hér til umráða hafi einhver minnstu áhrif á náttúruna?

Hvaðan haldið þið að gljúfur og fjöll þessa heims komi? Úr konfektöskju frá almættinu? Aldeilis ekki - jarðkringlan hefur frá upphafi engst sundur og saman, þeytt eldi og eimyrju úr höfum, hvolft löndum í saltan sæ, klofið fjöll og þrýst fram jöklum. Mér rennur í grun að hún muni halda því áfram án þess að spyrja mig - hvað þá ykkur - leyfis.

Þið vessagrænu umhverfishortittir eruð ekkert nema skammsýnir, eigingjarnir sníklar, blóðsugur á allt sem heyrir undir mannlega reisn, tottandi lífsvilja og framkvæmdagleði úr hugum og sálum þeirra sem þó vilja streitast við, hlaða vörður. Reisa minnismerki um að í einhvern tíma hafi hér þrifist líf.

Ó já. Ég vil sko stífla! Ég vil geta staðið á íslensku stórvirki og litið yfir lón svo djúpt, svo víðfermt, svo glæst að ég finni til þess að vera maður. Finni til þráðar vissu um að geta beislað náttúruna, mótað. Skapað. Fundið þó ekki væri nema vott tilgangs með þessari útþynntu maurkenndu jarðvist okkar.

Já, kæru landsmenn, ég vil geta fróað mér yfir Kárahnjúkavirkjun - í besta og fegursta skilningi þess orðs.

 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Spesi — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
     1, 2, 3 ... 180, 181, 182