Pistlingur – Númi Fannsker
Númi Fannsker

Við árþúsundamót er við hæfi að vöngum sé velt og ýmis málefni tekin til endurskoðunar. Löng hefð er fyrir slíkri endurskoðun á mikilvægum tímamótum og sýnist sitt hverjum um slíkt. Ekki ætla ég að falla í þá gryfju að eyða púðri eða tíma í slíkt hjóm, en vil þó benda á að gagnrýnin hugsun er nauðsynleg samfélagi okkar og allri menningu. Sá sem ekki er reiðubúinn að rýna til fulls í kjarna tilvistar sinnar er hálfur maður og enganveginn frambærilegur í samfélaginu. Samfélagi sem æ meir einkennist af skyndimenningu og græðgi þegnanna sem það byggja og líða um sem svefngenglar dreymandi hinn ameríska draum um gull og skóga græna. Slíkt hórarí er ekki samfélagi voru bjóðandi og mun ég ekki leggjast í slíkar þreifingar. Þó vil ég minnast á þá uggvænlegur þróun sem hér virðist landlæg orðin að gleypa við hverju því sem okkur er rétt af auðvaldinu í vestri og því eiturbrasi sem þaðan kemur og leggst á líkama og sál hinnar íslensku þjóðar. Kjúklingabitar og franskar eiga að leysa öll heimsins vandamál, popp og kók er lífið sjálft. En hvar er krafturinn? Sálin? Hvar er draumurinn?!!?Góðar stundir.

Lesbók frá fyrri tíð

Hverjum datt nú í hug að taka tilboði ítalska verktakafyrirtækisins Impregilo? Flögraði ekki að mönnum að slíkir kónar yrðu til vandræða? Fyrirtæki sem ítrekað hefur orðið uppvíst að mútum og vafasömum viðskiptaháttum!
Voru menn hissa þegar Ítalirnir tróðu starfsmönnum sínum inn í vasklausar kytrur þar sem þeir máttu dúsa í fjölþjóðlegri táfýlu hver um annan þveran? Nú eða þegar þeir beita öllum ráðum til að sleppa við að greiða þau laun sem þeim ber?

Grunaði fjandakornið engan að það væri ástæða fyrir því að ítalska verktakafyrirtækið Impregilo var með langlægsta tilboðið?!

Er nú ekki kominn tími til að stjórnvöld grípi hér í tauma og Davíð sýni þessum glæpasnúðum hvar hann keypti ölið?

Númi Fannsker 1/10/03
Enter – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Myglar – Sálmur
 
Númi Fannsker – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Kaktuz – Forystugrein
 
Kaktuz – Sálmur
 
Kaktuz – Sálmur
 
Enter – Leikrit
 
Númi Fannsker – Sálmur
 
Kaktuz – Saga
 
Kaktuz – Sálmur
 
Númi Fannsker – Sálmur
 
Fannar Númason Fannsker – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Sálmur
 
Enter – Forystugrein
 
        1, 2, 3 ... , 88, 89, 90  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA