Lesbók07.01.15 — Enter

Skjótið yfir markið, skjótið undir beltið,
skjótið út í loftið — hvæsið, urrið, geltið.
Skjótið niður veggi, skjótið niður múra,
skjótið niður fordóma sem djúpt í skuggum lúra.

Skjótið fast á hræsni, skjótið beint á valdið,
skjótið út í myrkrið — rífið niður tjaldið.
Skjótið niður heimsku, skjótið niður hræðslu
skjótið niður hugleysi og öfugsnúna fræðslu.

En ef þið skjótið hatri á hjörtu sem að tifa
þið hæfið aldrei frelsið — það mun alltaf lifa.

 
Kaktuz — Sálmur
 
Enter — Saga
 
Fannar Númason Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Kaktuz — Sálmur
 
Enter — Sálmur
 
Myglar — Sálmur
 
Kaktuz — Saga
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
        1, 2, 3 ... 178, 179, 180, 181, 182