Skelfingar ósköp þarf að ræða mikið þessar ekkisens andsvítans kosningar. Rífast. Kvabba. Tuða. Grenja. Sífra. Þvæla. Í tíma og ótíma.
Hvernig nennir fólk þessu?
Er ekki miklu betra, hagkvæmara, skilvirkara, heppilegra og sársaukaminna — að láta 5-6 manna dómnefnd velja þessa aumingjans opinberu starfsmenn sem bjóða sig fram til Alþingissetu?
Svona eins og var einu sinni í Eurovision. Þegar allt var fallegra og betra.
Ég tek það skýrt fram að mig langar ekki kakóbaun í þvottabala til að sitja í þeirri dómnefnd.