Lesbók30.10.12 — Enter

Nú nötrar og skelfur Lýðnetið vegna ótótlegs auglýsingaspjalds fyrir Salsaball NFFG, svokallað.

Þar sést karlmaður íklæddur risavaxinni sítrónusneið einni klæða (mögulega) standa og bíða lúpulegur meðan annar karlmaður (hugsanlega) þrífur á honum naflann með eyrnapinna (sennilega), skrýddur barðastórum stráhatti og dömubrjóstahaldi.

Vanhugsað? Jamm.
Glatað? Ójá.
Miðasöluhvetjandi? Jebbs.
Smekklaus leturnotkun? Heldur betur.

Það sem mér finnst þó öllu áhugaverðara er sú staðreynd að einhvers konar lífsmark virðist vera með Garðbæingum.

Þarna hljóta utanbæjarmenn að hafa verið að verki.

 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Dagbók
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
        1, 2, 3, 4 ... 180, 181, 182