
Rakst áðan á veikburða þýðingartilraun á orðskrýplinum app. Var það þýtt sem appli, sem óneitanlega vekur hugrenningatengsl við ávöxtinn sívinsæla epli.
Nema hvað.
Þetta mætti taka lengra. Hvers vegna ekki að notast einfaldlega við orðið afl?
Menn geta þannig aflað upplýsinga, beitt afli, átt ákveðið aflamagn og kunnað ýmis aflabrögð.
Það besta er samt að þá getur maður ófeiminn iðkað aflapot í símanum sínum.
Ágætu landsmenn.
Enn á ný vaknar Baggalútur af værum blundi og sprettur fram ferskur og endurnærður - boðinn og búinn að færa þjóðinni sannleikann.
Nú sem aldrei fyrr er þörf fyrir þá skeleggu fréttamennsku, fáguðu rýni, óspjölluðu réttlætiskennd og hið óbilandi siðferðislega aðhald sem einkennt hefur Baggalút frá upphafi. Þann huggandi vonarneista íslensku þjóðarinnar sem ekkert fær bugað - ekkert fær spillt.
Um leið og við þökkum dyggum lesendum biðlundina lofum við því og heitum að færa ykkur sannleikann óþveginn og formálalausan - í allan vetur.
Gleðilega hátíð.