Forystugrein – Enter
Enter

Í ljósi umræðunnar er kannski rétt að rifja upp nokkrar „falskar minningar“ sem við getum ornað okkur við:

1. Íslendingar eru viðskiptasnillingar.
2. Icesave er tær snilld.
3. Perlan er krúnudjásn Reykjavíkur.
4. McDonalds er komið til að vera á Íslandi.
5. Ísland hefur alla burði til að verða alþjóðleg fjármálamiðstöð.
6. Harpan skal vera tónlistarhús allrar þjóðarinnar.
7. Fíkniefnalaust Ísland árið 2000.
8. Fiskimiðin eru sameign þjóðarinnar.
9. Bandaríkjaher þarf á Íslandi að halda.
10. Ólafur Skúlason, biskup, er hlýr maður.

Fréttir
Enter – 3/6/13
 
Númi Fannsker – 28/5/13
 
Útgáfa
Lesbók frá fyrri tíð

Bittinú.

Eru þessi fata- og froðufellandi listahimpigimpi nú farin að míga hvert á annað í skólanum?

Ekki það að það komi mér sérstaklega á óvart, enda fáir sem eiga í meiri erfiðleikum að hafa stjórn á líkamsvessaflæði sínu og leiklistarnemar.

En nú á þessi blessaði leikskóli þeirra að heita stofnun á háskólastigi - eins heimskulegt og það kann nú að vera að kenna þá runki blendnu iðjuleysu sem þar er ástunduð við æðri menntir - og finnst mér það því lágmarks krafa skattgreiðenda að skólayfirvöld hunskist til að gæta þess að nemendur berhátti sig ekki og hægi sér yfir hvern annan á skólatíma.

Eða er það til of mikils mælst?

Enter – Gagnrýni
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
        1, 2, 3, ... 88, 89, 90  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA