
Hvađa flatlýstu fimbulfáráđlingar reka ţessa svokölluđu „fréttastofu“ RÚV?
Í fréttatíma kvöldsins stamađi ein hikstandi ţykksminkađa ţulargufan ţví út úr sér ađ einhverjir suđurlandsundirlenskir lúđraţeytarar ćtluđu ađ ţjösnast á lagi Páls nokkurs Óskars, Gordjössi.
Ţađ var ţá helst!
Nú ćtti ţessi óábyrga, óupplýsta fréttakytra ađ skammast til ađ leiđrétta án tafar ţessa vísvitandi rangfćrslu, innblásna fáfrćđi, illu innrćti og afdalamennsku – og biđja höfund lags og texta náđarsamlegast velvirđingar á helberum blábjánaganginum.
Bjartmar á betra skiliđ.
Baggalútur ćđir sterkur fram eftir sumarfrí. Gestir flykkjast inn og Gestapó er smám saman ađ vakna til lífsins.
Ýmsir vankantar eru enn á vefnum og auk ţess á enn eftir ađ snurfusa virkni og bćta viđ efni. Margir sakna t.a.m. gamals efnis af sérvefjum Baggalúts, s.s. ćttfrćđigrunnsins Grjóna, snjallrćđnasagna, ungfrú Islam.is o.fl. Ţetta mun allt verđa ađgengilegt innan skamms.
Ađ lokum er rétt ađ geta ţess ađ krossgátuna er vel hćgt ađ leysa - sé mađur sćmilega skynsamur.