Mikið óskaplega held ég nú að hann John Winston hefði verið ánægður með að halda upp á sjötugsafmælið sitt í Viðey.
Það hefði nú aldeilis verið eitthvað fyrir gamla Lifrarpyllinginn og djammskrýmslið.
Hægt að detta ærlega í það í Viðeyjarstofu með nokkrum íslenskum montprikum, taka svo rafmagnið af risageislasverðinu og stinga loks af frá gulu ekkjunni með síðustu ferjunni – og hrynja í það með Ringo á Ellefunni.
Það held ég nú.