Lesbók13.05.10 — Enter

Hinn óforbetranlegi Íslandsvinur Antonio 'Tino' Gomez Rodriguez Alfons Martini Johannesson III hefur af óendanlegri gæsku sinni og umhyggju fyrir landi og þjóð sett saman lítið kynningarmyndband ætluðu erlendum ferðamönnum.

Með myndbandinu vill Tino vekja athygli á Íslandi sem spennandi áfangastað fyrir nýjungagjarna og ævintýraþyrsta ferðamenn og blása þannig lífi aftur í íslenska ferðaþjónustu sem hefur átt mjög undir högg að sækja í kjölfar eldgossins í Eyjafjallajökli.

Myndbandið er kostað af ferðamálaráði Nicaragua, Bingóferðum, Álfaveiðisamtökum Norðurlands, mið-ameríska flugfélaginu Baboon aeroplanes og aldraðri móður Tinos.

Myndbandið má nálgast hér.

 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Spesi — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
     1, 2, 3 ... 180, 181, 182