
Jásko! Haldið þið ekki bara að Glerbarnið sé á dagskrá Sjónvarpsins á föstudaginn. Þessi stórbrotna sjónvarpsmynd frá 1978 byggð á skáldsögunni The ghost belonged to me, eftir hinn frábæra og heimsfræga rithöfund Richard Peck.
Já nú verður gaman. Nú skal poppað og Kókið kneyfað.
Takk RÚV!
Eru nú pappírpésarnir uppá honum Mogga búnir að reka Sigmund? Ég á ekki til eitt einasta aukatekið ekkisens orð. Hvers konar listatuddar og þjóðníðingar leyfa sér slík og þvílík menningarsöguleg spjöll?
Þetta er eins og að reka Bjögga úr Brimkló, Paul úr Bítlunum, Erlend úr Arnaldi. Ágúst úr dagatalinu.
Að þeir skuli dirfast að slíta þannig sálina úr sjálfu Morgunblaðinu, troða á stolti þess og hrifsa skarið af einu eftirlifandi ljóstýrunni. Megi skömm þeirra að eilífu uppi og skeinildið sem eftir stendur þynnast og súrna – og auglýsingar þess að engu verða.
Nú fyrst er allt farið til andskotans.