Dagbók – Spesi
Spesi

Alltaf sama fíflið, hann Enter.
Fór á Avatar í þrívíddarbíó og vældi svo yfir hvað sagan væri slöpp og „lúkkið ekkert nálægt því sem manni hafði verið lofað.“

Bætti svo við að hann skildi ekki af hverju allir hinir bíógestirnir voru með „svona skrýtin gleraugu.“

Fréttir
Enter – 3/6/13
 
Númi Fannsker – 28/5/13
 
Útgáfa
Lesbók frá fyrri tíð

Í hugum Íslendinga þýðir skítur peningar. Dreymi mann skít er það fyrir peningum. Menn eiga peninga eins og skít og skíta þá gjarnan ekki með skraufþurru rassgatinu (afsakið - en svona er íslenskan bara myndrænt tungumál). Stundum heldur fólk líka að maður skíti peningum, einkum börnin manns og náttúrulega ríkið (hér er átt við stjórnvöld - ekki ÁTVR... og þó).

En svo er það blessuð peningalyktin. Lykt sem er svo viðurstyggileg þegar um mjög mikla peninga er að ræða að maður hreinlega kúgast á göngu um miðbæ Reykjavíkur. Svo gífurlegir peningar eru í spilinu þessa dagana í höfuðborginni að börn og lasburða fólk heldur sig innandyra, með alla glugga lokaða til að verjast þessum verðmæta fnyk. Bílstjórar slökkva á miðstöðinni, gangandi vegfarendur hylja vit sín, gretta sig í framan og píra augun til að slá á mesta sviðann. Gubba í næstu ruslafötu eða jafnvel sjálfa Reykjavíkurtjörn. Erlendir ferðamenn velta því fyrir sér hvort Reykvíkingar hafi ekki fyrir því að jarða hina látnu, heldur láti þá rotna í hrúgu á heitum stað - e.t.v. í Laugardalnum.

Þetta er náttúrulega óþolandi. Það er auðvitað fullkomlega galið að yfirvöld leyfi þvílíka mengun í sjálfum miðbæ höfuðborgarinnar. Skítafýlu í heimsmenningarborginni. Peningalykt. Má ég þá heldur biðja um sætan ilm örbirgðar.

Númi Fannsker 1/3/05
Númi Fannsker – Dagbók
 
Myglar – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Fannar Númason Fannsker – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
     1, 2, 3 ... 45, 46, 47  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA