Lesbók29.12.09 — Enter

Almáttugur minn einasti hvað ég er orðinn leiður á þessu andsvítans Icesave-væli. Þessu stanslausa sífri, tuði og kvabbi.

Auðvitað eigum við að borga þetta helvítis helvíti.

Það væri nú aldeilis saga til næstu bæja ef litli ofaldi uppskafningurinn í norðri stingi kjagandi af úr eftirpartíinu sem hann stofnaði til, skriði sótölvaður með allt niðrum sig undan glaseyðgum hnjágleiðum útrásarklappstýrununum með kavíar út á kinn – og neitaði svo að borga reikninginn fyrir fylleríinu, hrunasúludansinum og egótottinu.

Allur var þessi eymingjans andskotagangur gerður í okkar nafni, af okkar fulltrúum – okkar gráðugu og veruleikafirrtu bræðrum í Kristi.

Við erum þjóð. Við sitjum í sama grugguga súpugutlinu, bak í bak. Það þýðir ekki eina stundina að monta sig af hreina vatninu og Björk, en afneita síðan Icesave og Silvíu Nótt og snúa snjóþvegnum nösum til himins og skrækja sig hása í þingpontum.

Akkúrat núna eru óhreinu börnin okkar búin að gera hressilega upp á bak og upp undir eyru í alþjóðlega sandkassanum – og þá er það okkar að rífa þau organdi upp á skvapkringdu rassgatinu og skipta á þeim.

Það er svo raunar líka í okkar verkahring að blóðhýða þessa sjálfsupphöfnu útrásarorma og alla þeirra landeyðandi leikfélaga. En það gerum við þegar heim er komið – og við höfum lokið við að vaska upp fyrir skuldum þeirra í eldhúsi fáránleikans.

 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Dagbók
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
        1, 2, 3, 4 ... 180, 181, 182