Lesbók15.05.08 — Enter

Hvað er eiginlega með allar þessar býflugur sem hlunkast nú puðrandi um garða læða sér um hverja glufu sem gefst?

Ég hef svei mér ekki séð þær svo margar áður. Eða svona stórar. Getur verið að hér sé að rísa úr rekkju nýr stofn ofvaxinna heimskautaflugna? Blóðþyrstra, lævísra kvikinda sem munu áður en yfir lýkur ríkja yfir okkur aumum mönnum og hneppa okkur í ævilangan þrældóm í klístruðum hunangsnámum sínum.

Eða er ég kannski full svartsýnn?

--
Og annað þessu tengt. Hvernig í mórauðri móður andskotans haldast þessar hlussur á lofti?

 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Spesi — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
     1, 2, 3 ... 180, 181, 182