Lesbók12.05.08 — Enter

Þurfti að losa lausafé um daginn svo ég brá mér í bíó.

Sá Járnkarlinn, delluhasar úr ofurhetju- og sprengingadeild hreyfimyndaborgarinnar Holskóga.

Jon Favreau leikstýrir, en hann á að baki sokkabuxnagleðileikinn Álf, með Will Ferrell, og hústökugeimævintýrið Zathura. Felst hans hlutverk einkum í því að koma söguhetjunni ítrekað í og úr járnbentum hetjuklæðum sínum án þess að áhorfendum finnist þeir hafa verið hlunnfarnir. Tekst það prýðilega.

Einhverjir eru sagðir skrifa þessi ósköp, fjórir heiðursmenn nánar tiltekið; væntanlega einn sniðugur, einn tilvistarfræðilega þenkjandi, einn harðsoðinn einlínungssmiður og einn sem kann obskjúra arabískt hljómandi mállýsku.

Robert Dowey, sá hinn yngri, er í fínu formi, afeitraður og hvolpeygður sem aldrei fyrr. Fer vel með flesta grundvallarþætti hlutverksins; detta, fljúga, lemja, hugsa og brosa.

Aðrar persónur og leikendur eru að vonum léttvægar og lítt eftirminnilegar - þó ber að halda til haga tignarlegu skeggi Jeff Bridges og gljáandi skalla.

Sumsé; allásættanleg heiladeyfing í flesta staði og óskandi að þessi hjartahlýja, fljúgandi blikkdós fái fleiri tækifæri til að verja brothætta heimsmynd Bandaríkja Norður-Ameríku á hvíta tjaldinu.

 
Enter — Gagnrýni
 
Enter — Gagnrýni
 
Enter — Gagnrýni
 
Spesi — Gagnrýni
 
Enter — Gagnrýni
 
Enter — Gagnrýni
 
Spesi — Gagnrýni
 
     1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9, 10