Hvurn fjandann er þetta lopahjúpaða hippalistapakk að baula um þennan horngrýtis Sirkus sinn? Kallandi þetta niðurnídda kofaskrifli sitt „menningarverðmæti“ og „kennileiti fyrir erlenda ferðamenn“. Kjaftæði!
Þessi knæpuhola er samastaður iðju- og atvinnulausra listarúnkera sem ekkert betra hafa að gera en drekka frá sér rænu og ráð í rétttæplega fokheldum skúrgarmi í miðbænum sem fyrir löngu ætti að vera búið að jafna við jörðu. Það felast nákvæmlega engin menningarsöguleg verðmæti í því að Tarantino hafi farið þar í sleik inni á klósetti eða að Kiefer hafi pissað þar útfyrir. Engin segi ég!
Það að þeim hafi tekist að gabba einhverja fáeina rænulitla alkóhólista til að krota nafnið sitt á blað breytir engu þar um.