Lesbók23.12.07 — Myglar

Sennilega fyndnasti bókartitill síðustu ára gefur góð fyrirheit um bók sem ekki er aðeins ótrúlega hlægileg heldur einnig með eindæmum gagnleg. Bókin er að vísu ekki mjög löng, eiginlega er hún bæklingur fremur en bók. En það kemur ekki að sök því þeir félagar Hjálmar og Helgi eru gagnorðir með eindæmum. Kaflar bókarinnar byrja iðulega á lýsingu og mati á núverandi ástandi, en á eftir fylgja svo heilræði þeirra H&H. Um gagnsemi þessarra heilræða segí ég aðeins þetta: Ef þessi bók hefði nú bara komið út fyrr - þá væri ég kannski ekki rúmlega sjötugur piparsveinn í kjallaraíbúð í austurbænum.

Eftir að hafa lesið bókina finnst mér eins og öllum spurningum mínum hafi verið svarað, nema einni. Hver er þessi Þorgrímur Þráinsson?

 
Enter — Gagnrýni
 
Enter — Gagnrýni
 
Enter — Gagnrýni
 
Spesi — Gagnrýni
 
Enter — Gagnrýni
 
Enter — Gagnrýni
 
Spesi — Gagnrýni
 
     1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9, 10