Lesbók30.10.07 — Enter

Mikið er ánægjulegt að vita til þess að strákarnir í BAE skuli geta fundað óáreittir hér á landi. Alveg án þess að móðursýkt hippapakk hlaupi upp til handa, fóta og annarra útlima og kasti að þeim skyri og ókvæðisorðum.

Enda eru þetta voðalega góðir strákar. Með heilbrigð áhugamál, karlmannleg og falleg. Annað en pervertahyskið sem ætlaði hingað um daginn að striplast á hótel Sögu og leggjast á dætur okkar.

Svona er nú þjóðfélagið okkar litla smám saman að lagast og verða fullorðið.

 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Spesi — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
     1, 2, 3 ... 180, 181, 182