Sálmur – Enter

klaustur eru kvennabúr
kátur er ég ávallt þar
nem ég klæðum nunnur úr
nostra við þær útí skúr
sætar eru systurnar

fáum þykja klaustrin klúr
þeir kunna ekká nunnurnar
kleif ég áður fínar frúr
finnst mér reynsla sú nú súr
sælar eru systurnar

Fréttir
Númi Fannsker – 16/5/13
 
Enter – 13/5/13
 
Útgáfa
Lesbók frá fyrri tíð

Hvert er eiginlega verið að flytja Hringbrautina? Upp á Akranes?

Hvenær á þessum demónísku framkvæmdum eiginlega að ljúka? Þessir menn eru búnir að þjösnast þarna í Vatnsmýrinni á þessum daunspúandi traktorum sínum frá því í sumar án nokkurs sýnilegs árangurs. Jú, þeim hefur að vísu auðnast að tæta sundur nokkur andahreiður og moka nokkrar mjög flottar holur – og svo auðvitað að þrengja Hringbrautina. Bra-djöfuls-vó!

Hvernig væri nú að upphysja og aðhneppa brókum hvers annars og þurrka smurolíuna af púst­rörunum. Mér er nokk sama milli hvaða flöskustúta þið troðið þessum mislæga æðahnút ykkar. Drífið þetta bara af!

Í það minnsta áður en flugbílar komast hér í almenna notkun og rífa þarf allt klabbið til að stækka flugvöllinn.

---

Og annað! Var alveg bráðnauðsynlegt að ráðast í aðdyttingar og krúsídúllukantskurð í Suðurgötunni svona rétt á meðan? Bara rétt til að tryggja að aðeins Vesturbæingar með aðgang að svifdreka eða neðanjarðarlest komist leiðar sinnar.

Fimbulapar.

Fannar Númason Fannsker – Forystugrein
 
Kaktuz – Forystugrein
 
Enter – Sálmur
 
Kaktuz – Forystugrein
 
Enter – Sálmur
 
Kaktuz – Sálmur
 
Kaktuz – Sálmur
 
Kaktuz – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Kaktuz – Sálmur
 
Kaktuz – Sálmur
 
Enter – Saga
 
Fannar Númason Fannsker – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Sálmur
 
Kaktuz – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Myglar – Sálmur
 
Kaktuz – Saga
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
        1, 2, 3 ... 87, 88, 89, 90  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA