Það er ekki amalegt að vera falinn sá heiður að vera fulltrúi þessa sannleiksmiðils á jafn sögulegri stund og landsleik Þjóðverja og Íslendinga á morgun. Ekki grunaði mig að stund sem þessi myndi renna upp þegar ég réði mig til starfa hér á ritstjórn. Það verður líka gaman að rifja upp Þýzkuna. Gott ef maður fær sér ekki Bratwurst. Jæja, lestin er að fara...áfram Ísland.