Það er ekki nóg að hafa öfga til vinstri. Sjálfstæðismenn verða líka að fá eitthvað fyrir sinn snúð...
Fram, fjáðir menn í fimm, sex löndum
sem fjármagnsvaldsins mælið rök!
Nú bregðum frelsis bláu höndum,
og bræðum fleiri loðnuflök.
Ríkisfyrirtæki vér kaupum!
Davíð! Kipptu þessu í lag -
Vér berum fé á fólk og hljótum
að fá betri vexti í dag.
Viðlag:
Þó að framtíð sé falin,
og kreppa við sjónarrönd,
mun Íhaldsnationalinn
gefa meir'í aðra hönd.