Mikið er þetta fallegur dagur. Lítiði nú út um gluggann, opnið hann helst upp á gátt og rekið nefið útfyrir. Andið. Mmmmm.
Mig langar í ís. Alla sanna Íslendinga langar í ís í góðu veðri. Fáum okkur öll ís. Mmmmm.
Og pulsu. Langar ykkur ekki í pulsu í góða veðrinu? Pulsu og ís - og kannski kók, í gleri? Mmmmm.
Ég ætla að fá mér pulsu með öllu og kók í gleri - og ís á eftir. Við skulum öll gera það. Af því að það er svo gott veður. Af því að dagurinn er svo fallegur og af því að ég er í svo ljómandi góðu skapi. Mmmmm.