Lesbók07.04.03 — Spesi

Ég varði mestum hluta helgarinnar á Café Kulture og hlustaði á ýmsa hreint magnaða tónlistarmenn leika listir sínar. Meðal þeirra var ungur maður, villimannslegur mjög, sem virtist kunna fyrir sér á flestum þeim hljóðfærum sem í húsinu voru.
Á föstudagskvöldið lék hann á trommur og orgel, en að spilinu loknu neyddist ég til að benda honum á að hann hafði leikið mestallt kvöldið í annarri tóntegund en meðspilarar hans. Úr þessu bætti hann á laugardagskvöldið þegar hann lék á píanó og saxófón.
Þakkaði hann mér innilega fyrir að hafa beint sér á rétta braut og bað hann mig að halda áfram að veita sér leiðsögn á hálum vegi tónlistarinnar. Þar sem kennsla er mér eðlislæg og þekking mín á tónlist á heimsmælikvarða gat ég ekki annað en orðið við beiðni þessa unga og efnilega manns.
Hyggst ég því nýta hæfileika mína í að gera úr honum þann tónlistarsnilling sem ég varð aldrei (vegna glataðra tækifæra í æsku).

 
Kaktuz — Saga
 
Kaktuz — Sálmur
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Fannar Númason Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
        1, 2, 3 ... , 180, 181, 182