Nú er Enter búinn að kaupa sér farartæki. Tógjóðuflís á okurprís. Ég vissi ekki einu sinni að hann væri með bílpróf.
Það er ólíku saman að jafna - Volvó og Tógjóðu. Þetta er svipað og munurinn á stóðhestinum Orra frá Þúfu og múlasna. En þetta vill hann blessaður - ekki vegna þess að hann veit ekki betur, heldur vegna þess að hann þolir ekki ábyrgðina sem fylgir því að eiga þvílíkt djásn sem Volvó er.
Hann er dálítið eins og hamstur hann Enter. Voðasætur en með afskaplega lítinn heila. Þetta verður maður bara að sætta sig við.