Pistlingur – Enter
Enter

Hljómgormar eru nýleg munađarvara sem koma til af mikilli ţörf á ađ geta geymt tónverk á tölvutćku formi og virđast ćtla ađ sigra í markađsstríđi viđ annars vegar stafrćna diska, en ţeir ţykja klístrast og hins vegar svokallađar vínilkúlur sem eru smágerđar perlur sem rađast saman eftir ákveđnum formerkjum og hafa skođun á tónlistinni sem ţćr geyma ţćr ţykja full byltingarkenndar.

Hljómgormarnir verka skemmtilega(:) Ţar til gerđur gormur er tekinn og honum velt upp úr sýrópi. Ţví nćst er lagiđ sem á ađ festa á grominn sungiđ/trallađ í gegnum sérstaka himnu sem á eru festar örsmáar agnir. Agnirnar sjúga í sig tóna, losa sig af himnunni og svífa í átt ađ gorminum. Ţar festast ţćr í gómsćtu sýrópinu sem ţćr eru sólgnar í.
Ţví nćst er gorminum stungiđ í kalt formalín og hann látinn skipta litum. Ţá fyrst má renna honum í gegn um sérstakt apparat sem nemur upplýsingar frá ögnunum og breytir ţeim í hljóđbylgjur. Apparatiđ er mjög hentugt ţar sem ţađ gengur fyrir sýrópi. Ţví eru hljómgormarnir og notkun ţeirra náttúruvćn ađ umtalsverđu leyti.
Stćrsti gallinn viđ notkun hljómgorma er aftur sá ađ lítiđ sem ekkert heyrist af tónlist fyrir smjatti agnanna og appíratsins, ţađ stendur ţó vonandi til bóta.

Fréttir
Enter – 3/6/13
 
Númi Fannsker – 28/5/13
 
Útgáfa
Lesbók frá fyrri tíđ

Ţessa áhugaverđu lesningu rakst ég á í vestur-íslenska tímaritinu Vínlandi, sem kom út í Manitoba 1902-1908:

„Pétur ţessi kom frá Texas og ţótti illur viđureignar. Hann var hérumbil jafn fyrirferđar á lengdina og ţverveginn, međ kaflođinn kjaft og augnabrúnir. Hann hafđi ekki góđan mann ađ geyma, og fann upp á öllum skrattanum öđrum til meins. Hann var lygari, ţjófur og eiturnađra í ţríeiningu. Og ţađ ţori eg ađ segja ađ Texas Pési horfđi ekki meira í ađ drepa mann en fá sér ađ drekka – og honum varđ ţó ekki flökurt af sopanum piltinum ţeim. Friđsamir menn töluđu hógvćrlega og létu hann alveg eiga sig; óróaseggjum holađi Pétur einhversstađar niđur úti á sandinum.“

Ţetta gćti vakiđ áhuga ţeirra sem muna eftir hinum velska og rauđklćdda Ofurbangsa, sem var tíđur gestur á skjám landsmanna á 9. áratug síđustu aldar. En hans erkióvinur var einmitt Texas-Pési.

Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Myglar – Sálmur
 
Númi Fannsker – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Kaktuz – Forystugrein
 
Kaktuz – Sálmur
 
Kaktuz – Sálmur
 
Enter – Leikrit
 
Númi Fannsker – Sálmur
 
Kaktuz – Saga
 
Kaktuz – Sálmur
 
Númi Fannsker – Sálmur
 
Fannar Númason Fannsker – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Sálmur
 
        1, 2, 3 ... , 88, 89, 90  
Ţjóđbók
Baggalútur er hýstur af alúđ og umhyggju hjá ADVANIA