Dónald „Jeremíasminn“ Trump var í morgun réttkjörinn forseti Bandaríkja Norður–Ameríku. Mun það vera í fyrsta skipti sem erfðabreytt sætkartafla gegnir þessu eftirsótta embætti.
Tilsjónarmenn Trumps eru að vonum kátir með þetta, þrátt fyrir að hafa ákveðnar áhyggjur af ýmsum aukaverkunum sem umbreytingarferlið hefur haft í för með sér.
„Hann hatar auðvitað allt sem ekki er appelsínugult. Honum er skiljanlega meinilla við grænmetisætur — og raunar alla sem leggja sér ekki eingöngu rautt kjöt til munns. Svo er hann mjög andsnúinn konum, eftir að mótframbjóðandi hans reyndi í ógáti að leggja sér hann til munns fyrir fyrstu kappræður þeirra. Annars er þetta ágætis karl… karltafla.“