BAGGALÚTUR
FRÉTT — 4/12/15 — N?mi Fannsker
Skjalataska ríkisráðs horfin
Skjalataska ríkisráðs var nýuppfærð sem svokallað „basic survival kit“ í samræmi við neyðarreglur Almannavarna.

Skjalataska ritara ríkisráðs er horfin úr peningaskáp stjórnarráðsins. Ritari ríkisráðs hafði nýverið, í samráði við skemmtanastjóra stjórnarráðsins, látið uppfæra innihald skjalatöskunnar í samræmi við neyðarreglur.

[*Uppfært]
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sást í hádeginu á hlaupum upp Esjuna með töskuna, partýhatt á höfðinu og Risaflugeldapakka frá Landsbjörg.