BAGGALÚTUR
FRÉTT — 4/12/15 — Enter
Pútín neitar að tjá sig um Panamaskjölin
Pútíni virðist drullusama.

Fréttamenn Baggalúts hafa árangurslaust reynt að ná tali af Valdimari Pútíni, Rússlandsforseta vegna meintra tengsla hans við panamaskjölin svonefndu.

Skilin hafa verið eftir ótal skilaboð á símsvara hans og í talhólfi auk þess sem móðir hans hefur ítrekað verið beðin um að skila því til hans að hætta að láta eins og smákrakki.

Er þetta mjög miður, því Pútín er að öllu jöfnu mjög hress og skemmtilegur viðmælandi með ríka kímnigáfu og kemur gjarnan með fersk og skemmtileg sjónarhorn á erfið mál.

Verst er þó að þessi framkoma leiðtogans skapar afar slæmt fordæmi, því litlir þjóðhöfðingjar og stjórnmálamenn um allan heim sem líta upp til hans byrja auðvitað samstundis að apa þetta eftir honum — eins og aðra stæla í honum.