BAGGALÚTUR
FRÉTT — 4/12/15 — Enter
Aflandsliðið kynnt á næstu dögum
Ljósmyndari Baggalúts bíður spenntur eftir fyrsta afleiknum í stöðunni.

Nánast er fullskipað í Af–landslið Íslands, en endanleg uppstilling verður kynnt á allra næstu dögum.

Liðið mun keppa fyrir Íslands hönd í ýmsum greinum, m.a. fjármálagerningum, undanskotum, fléttum og hverskyns reikningskúnstum.

Er liðinu spáð góðu gengi, enda skipað úrvals fólki úr efstu stigum þjóðfélagsins, með mikla reynslu.

Stífar æfingar fara nú fram á Jómfrúreyjum og því hefur eðlilega reynst erfitt að ná tali af þessu liði.