Aðventulag Baggalúts, Sagan af Jesúsi, er lítill helgileikur byggður á raunverulegum atburðum sem gerðust fyrir mörgum árum í útlöndum.

Lagið er þýskt þjóðlag, en ljóðið börðu þeir Enter og Númi Fannsker saman.

Lagið syngja þeir Númi (með skrækri kellingaröddu), Spesi (með björtum bassarómi) - og vinur þeirra Kristbjörn Helgason, sem syngur millirödd.

Hljóðfæraleik önnuðust Þórir Úlfarsson sem lék á platstrengi, flórsykurbjöllur og ýmsa hljóðgerfla, Helgi Svavar Helgason á trommur, Mikael Svensson á píanó og Hammondorgan, Davíð Þór Jónsson á bassa og Sigurður Guðmundsson á rafgítar.

Upptökum stýrði Guðmundur Kristinn Jónsson í hljóðveri Rúnars Júlíussonar, Geimsteini. Keflavík.

Jólalag Baggalúts 2005, sem að þessu sinni ber heitið Föndurstund er svo væntanlegt innan skamms. Gleymið svo ekki að kaupa miða á stórtónleika Baggalúts, þann 8. des. Miðasala á midi.is og í verslunum Skífunnar og BT - annars fáið þið ekkert í skóinn.

SAGAN AF JESÚSI

Það var um þetta leyti
þarna suðurfrá - í miðausturlöndum.
Þar var ungt par á ferli
konan kasólétt - þeim var vandi á höndum.

Öll mótelin vor'upptekin
og yfirbókuð gistiheimilin.

Og þannig byrjaði sagan af því
þegar hann Jesús kom heiminn í.

Þau létu fyrirberast
inní fjárhúsi - með ösnum og kindum.
En það var ósköp kósí
ekki ósvipað – gömlum biblíumyndum.

Þar kom í heiminn – mannkyns von
hinn kunni Jesús Kr. Jósepsson.
Hann endaði í jötunni
beint undir Betlehemstjörnunni.

Og þannig hljómar nú sagan af því
þegar hann Jesús kom heiminn í.

Hallelúja!

Og þannig hljómar nú sagan af því
þegar hann Jesús kom heiminn í.

Svo rákinn nefið vitringar
sem fyrir rælni voru staddir þar.
Þeir óðu inn með gras og gull
og eitthvað óríental jurtasull.

Ó, Jósep sendi SMS.
Ó, María, var bara furðu hress.
Ó, barnið lá og snuðið saug
með bros á vör – og soldinn geislabaug

Og þannig endar nú sagan af því
þegar hann Jesús kom heiminn í.

Já, þannig hljómaði sagan af því
þegar hann Sússi kom heiminn í.

Þið ráðið sjálf hvort þið trúið því
Amen