Í ár kemur Baggalútur til móts við þá fjölmörgu sem ýmist þola ekki biðina eftir árvissu Jólalagi Baggalúts, þola illa þann kynngimagnaða frumkraft sem í þeim býr, eða hreinlega þola ekki lögin sjálf. Því höfum við ákveðið að færa þjóðinni sérstakan, auðmeltan og léttkleikandi aðventusöng sem hefur hlotið nafnið Kósíheit par exelans.

Lagið er, eftir því sem næst verður komist, ættað frá Ástralíu, en kvæðið sömdu þeir Enter og Númi Fannsker í kjölfar velheppnaðs ritlistarnámskeiðs í Iðnskólanum í Hafnarfirði.

Lagið syngja þeir Númi, sem syngur bjartan tenór - og Spesi, sem syngur dimman barítón.

Hljóðfæraleik önnuðust Kristinn Snær Agnarsson, trumbur, Guðmundur Kristinn Jónsson, gítar, Guðmundur Freyr Vigfússon, bassagígju og Baldur Þórir Guðmundsson á Yamaha orgel.

Einnig lögðu lúðrasveit varnarliðsins, kammermúsíksveit Innri-Njarðvíkur og barnakór Gunnars Þórðarsonar sitt af mörkum og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.

Upptökum stýrði, sem oft áður, Guðmundur Kristinn Jónsson í hljóðveri Rúnars Júlíussonar, Geimsteini. Keflavík.

Hið eiginlega Jólalag Baggalúts 2004, sem að þessu sinni ber heitið Þorláksmessa er svo væntanlegt um miðjan desembermánuð.

Kynnið ykkur þangað til fyrri jólalög Baggalúts:

2003 - sækja | 2002 - sækja | 2001 - sækja

KÓSÍHEIT PAR EXELANS
Gibb / Fannsker / Sandeman

Afsakaðu allan þennan reyk inni,
ég var barað líta til með steikinni.
Hún er meir og mjúk - hún er eins og hugur manns.

Loksins ertu kominn hingað á minn fund;
finn svo gjörla - þetter töfrastund.
Úti vindur og fjúk - kósíheit par exelans.

Smakka sósuna - því mér finnst hún í það þynnsta.
Hún þarf korter enn - í það allra minnsta.
Og við setjumst að borðum - ha-ha.
Já við setjumst og borðum - ha-ha.

Réttu rauðkálið, grænu baunirnar
Viltu kartöflur, sykurbrúnaðar?
Hvernig smakkast svo? - Þetter yndislegt.
Jahá, en mest er þó gaman - ha-ha
að við skulum vera saman - ha-ha.

Góða veislu má ei skorta eftirrétt.
Eitthvað sem er saðsamt, en um leið svo létt.
Fáðér rúsínubrauð
-nær algerlega fitusnauð.

Allir þurfa jú að passa línurnar.
Viljum ekki enda eins og svín - er það?
Fokkitt - skítt með það - fáum okkur ögn meiri rjóma.

Viltu sérrítár? Eða kamparí í órans?
Æ, manstu vikuna okkar í Flórens?
Er við drukkum það saman - ha-ha.
Æ, hvað það var nú gaman - ha-ha.

Smökkum sörurnar, mömmukökurnar,
makkarónurnar - eplabökurnar.
Hvernig smakkast svo? Þetter dásamlegt!
Jahá, en mest er þó gaman - ha-ha
að við skulum vera saman - ha-ha.

Meira laufabrauð? Eða marensfrauð?
Hvar er konfektið? Er það upp urið?
Hvernig smakkast svo? Þetter æðislegt!
Jahá, en mest er þó gaman - ha-ha
að við skulum vera saman - ha-ha.

Hvar er beilísið? Hvar er sjampeinið?
Bættu toffíí æriskoffíið!
Hvernig smakkast svo? Þetter unaðslegt.
Jahá, en mest er þó gaman - ha-hah
að við skulum vera saman - ha-hah.