| ÁR | SVIPMYND | VIÐBURÐUR | ÁHRIF Á UMHEIMINN |
| 8 7 4 |
![]() Ingólfur Arnarson hafði ekki numið land áður, svo vitað sé |
Landnám Íslands |
Margir af mestu frekjuhundum, glæpamönnum og leiðindaskörfum Evrópu setjast að á Íslandi. Í hönd fer mikill uppgangs- og gleðitími í öðrum Evrópulöndum. |
| 9 3 0 |
![]() Frá vinstri: Ingólfur, Eiríkur rauði og óþekktur breskur ferðamaður |
Stofnun Alþingis | Þingið verður innblástur að stofnun svipaðra klúbba og félagasamtaka víða um heim, þ.á.m. Kiwanis, Ku Klux Klan, AA og skátanna. |
| 1 0 0 0 |
![]() Leifur siglir með alvæpni niður Mississippifljót |
Leifur Eiríksson finnur Ameríku | Frumbyggjar Ameríku fá þá vafasömu mynd af Evrópubúum að þeir séu sjóveikir, ósjálfbjarga drykkjusvolar - sem aftur veldur því að þeir hafa ekki vara á sér þegar Kólumbus mætir í góðu stuði nokkrum öldum síðar. |
| 1 0 0 0 |
![]() Þorgeir Ljósvetningagoði og feldurinn góði |
Kristnitakan | Heiðni líður undir lok og með henni hinar fornu dyggðir forfeðra Evrópumanna; drenglyndi, gestrisni og kvenfrelsi. |
| 1 2 4 1 |
![]() Snorri varðist drengilega í laug sinni að Reykholti |
Snorri Sturluson veginn | Rithöfundar víðs vegar í heiminum hætta að baða sig. Þessara áhrifa gætir enn þann dag í dag. |
| 1 2 6 2 |
![]() Noregskonungur bregður á leik |
Gamli sáttmáli Íslendingar ganga Noregskonungi á hönd |
Noregur verður að athlægi í alþjóðasamfélaginu og er ekki tekinn í sátt fyrr en með sigri í Eurovision 1985. |
| 1 3 9 0 |
![]() Hér sést einn skrifaranna lita myndir við Sörla þátt. |
Flateyjarbók skrifuð | Þeir 112 kálfar sem notaðir voru í bókina voru fengnir frá Færeyjum og var skortur á ýmsum mjólkurvörum viðvarandi í eyjunum næstu aldir. |
| 1 4 0 2 |
![]() Margar ungar konur smituðust illa af farsóttinni |
Svartidauði | Fyrir misskilning eru blökkumenn litnir hornauga á Íslandi næstu 600 árin. |
| 1 5 5 0 |
![]() Meðan allt lék í lyndi. Frá hægri, Gissur Einarsson, Jón Arason og Bússi böðull |
Siðaskiptin | Pílagrímsferðir voru bannaðar og því lögðust ferðir Íslendinga til Suður-Evrópu af með öllu. Fjölmargir leiðsögumenn, gleðikonur og vínkaupmenn á Ítalíu missa vinnuna. |
| 1 6 1 5 |
![]() Það var glatt á hjalla í Vigur kvöldið eftir vígin |
Spánverjavígin Hópur baskneskra hvalveiðimanna veginn í Æðey |
Sjálfsvarnarsamtök Baska (ETA) stofnuð. |
| 1 6 2 1 |
![]() Jón hitti fyrir ýmis sérkennileg kvikindi á ferðum sínum |
Jón Indíafari
kemur til Kanaríeyja |
Jón ber með sér óþekktan sjúkdóm sem leggur fjölda fólks í valinn og eru eyjaskeggjar enn að ná sér eftir heimsóknina
|
| 1 6 2 7 |
![]() Tyrkja-Gudda þótti á tíðum erfið viðureignar í Barbaríinu, en skemmtileg |
Tyrkjaránið | Slæmt orð kemst á múslima sem haldist hefur á Vesturlöndum fram til dagsins í dag. Nýsmit á gláku og sárasótt eykst til muna í Alsír. |
| 1 7 0 7 |
![]() Bólurnar voru af ýmsu tagi, en allar stórar |
Stóra-Bóla Fjórðungur þjóðarinnar deyr |
Útflutningur Dana á maðkétnu mjöli og skemmdum kartöflum dregst verulega saman. |
| 1 7 5 1 |
![]() Skúli Magnússon, fógeti, lítur yfir teikningar af baðinnréttingunum |
Innréttingarnar stofnaðar | Hugmyndaþjófnaður sænsks vikapilts sem aðstoðaði við verkið lagði grunninn að IKEA veldinu. |
| 1 7 8 3 |
![]() Móðan smaug inn um allar glufur |
Móðuharðindi | Valda miklum hörmungum og matarskorti víðsvegar í Evrópu, sem leggur m.a. grunn að frönsku stjórnarbyltingunni. Ímynd Íslands sem uppspretta leiðinda og óhamingju festist endanlega í sessi. |
| 1 8 3 5 |
![]() Frá vinstri: Konráð, Jónas, Brynjólfur og Tómas |
Fjölnir kemur út í fyrsta sinn | Orðspor Íslendinga sem grínista berst víða um heim. Hugtakið sorprit verður til. |
| 1 8 4 4 |
![]() Síðasti geirfuglinn mun hafa heitið Erlingur |
Síðasta geirfuglsparið drepið í Eldey | Heimurinn er að eilífu laus við
þessi ófleygu leiðindakvikindi. |
| 1 8 4 5 |
![]() Hér sést skáldið yrkja Fararsnið |
Jónas Hallgrímsson deyr í Kaupmannahöfn | Mjög dregur úr nýsmiti á sýfilis meðal Dana. |
| 1 8 5 1 |
![]() "..og ég mótmæli í nafni konungs og þjóðarinnar þessari aðferð og ég áskil þinginu rétt til að klaga til konungs vors yfir lögleysu þeirri sem hér er höfð í frammi" |
Þjóðfundurinn | Danir taka að gæla við þá hugmynd að þeir muni í fyllingu tímans losna við Ísland af fjárlögum sínum. |
| 1 8 5 5 |
![]() Fáar, en skrautlegar sögur fara af landnámi Íslendinga í Texas |
Íslendingar taka að flytjast búferlum þúsundum saman til Vesturheims | Hinir brottfluttu verða fljótt til vandræða
í nýjum heimkynnum sínum og eru meðal annars
taldir vera einn helsti orsakavaldur kreppunnar miklu í Bandaríkjunum
og þ.a.l. seinni heimstyrjaldarinnar. |
| 1 8 7 4 |
![]() Frá hægri: Kristján IX, óþekktur Íslendingur |
Íslendingar fá stjórnarskrá | Danakonungur, sem afhenti stjórnarskránna, kvefast illa. |
| 1 9 1 6 |
![]() Jónas frá Hriflu og félagar í góðu stuði |
Framsóknarflokkurinn stofnaður | Stríðandi fylkingar fyrri heimstyrjaldarinnar láta landið algerlega afskipt af ótta við smit. |
| 1 9 1 8 |
![]() Keflvíkingar fagna fullveldinu |
Ísland verður fullveldi | Mikil fagnaðarlæti brjótast út í Danmörku. Íslendingar í Kaupmannahöfn einangrast æ meir þar til fríríkið Kristjanía er stofnað. |
| 1 9 1 8 |
![]() Dr. Helgi ræðir við einn skjólstæðinga sinna |
Dr. Helgi Pjeturss kemur fram með kenningar sínar um Nýal | Geimverur hætta snarlega við að hafa samband við jörðina. |
| 1 9 2 4 |
![]() Íslenski minkurinn þykir með greindarlegri skepnum |
Fyrsti minkurinn sleppur út í lífríkið | Heimurinn mun aldrei framar sjá frosthaukinn, dvergísbjörninn, gjóskukrabbann né sandapann. |
| 1 9 2 6 |
![]() Annar eins ilmur hafði ekki fundist áður í henni Reykjavík |
Kexverksmiðjan Frón stofnsett | Alþjóðaheilbrigðisstofnunin tekur að gera kröfur um innihaldslýsingar á matvörum. |
| 1 9 3 2 |
![]() Það rigndi talsvert á átakasvæðinu |
Gúttóslagurinn | Alþjóða Ólympíunefndin leggur endanlega á hilluna allar hugmyndir um að gera íslensku glímuna að Ólympíugrein. |
| 1 9 4 0 |
![]() Bresku dátarnir þóttu yfir meðallagi kynþokkafullir |
Hernámið | Lagður er grunnurinn að hnignun breska heimsveldisins þegar íslenskar stúlkur taka að spilla æru og vessum þúsunda breskra dáta. |
| 1 9 4 4 |
![]() Hér sést Sveinn Björnsson fagna ásamt Jóni Helgasyni (t.v.) |
Ísland verður lýðveldi | Engin áhrif. |
| 1 9 5 5 |
![]() Frú Auði þóttu verðlaunin afar mikilfengleg, allt að því erótísk |
Halldór Laxness hlýtur Nóbelsverðlaun í bókmenntum | Sannar í eitt skipti fyrir öll að jafnvel fábrotnir bændasynir geta orðið montnir uppskafningar ef viljinn er fyrir hendi. |
| 1 9 5 6 |
![]() Vilhjálmur er einn mesti íþróttamaður sem landið hefur átt |
Vilhjálmur Einarsson hlýtur silfurverðlaun í þrístökki á Ólympíuleikunum í Melbourne | Aðrar þjóðir taka að æfa þrístökk af einhverri alvöru. |
| 1 9 6 2 |
![]() Hér sjást Vestfirðingar úða í sig súkkulaðikexi og álpappír |
Innflutningur hefst á Prins Póló | Pólskur iðnaður nær sér á strik og fæðir af sér öfluga verkalýðsbaráttu Lech Walesa og vina hans. |
| 1 9 6 6 |
![]() Sósan var fundin upp fyrir hreina tilviljun |
Kokkteilsósan fundin upp |
MacDonald's keðjan íhugar að setja kokkteilsósuna á matseðilinn sinn, en hættir við þar sem uppskriftin þykir full flókin. |
| 1 9 6 8 |
![]() Mikið var lagt upp úr því að allir íbúar landsins virtu nýju lögin |
Hægri umferð leidd í lög | Upphaf að hruni blómlegs bílaiðnaðar
Breta, olli stórfelldu atvinnuleysi og versnandi lífskjörum
í mörgum af blómlegustu héruðum landsins. |
| 1 9 7 1 |
![]() Danska sendiráðið bauð upp á pítsur og Jolly Cola í tilefni dagsins |
Heimkoma handritanna | Heilmikið pláss losnar fyrir dönsk öndvegisrit á Konungsbókhlöðu í Kaupmannahöfn, aðsókn ferða- og fræðimanna á safnið eykst í framhaldinu til muna. |
| 1 9 7 2 |
![]() Kalda stríðið var í algleymingi meðan á einvíginu stóð |
Einvígi Fishers og Spassky | Skák festist endanlega í sessi sem dægradvöl sérvitringa og einstæðinga. |
| 1 9 7 4 |
![]() Hér má sjá Vestmanneyinga leita að þjóðveginum |
Skeiðarárbrú fullgerð og hringvegurinn opnaður | Heimsmetabók Guinness skráir stærsta hringtorg í heimi. |
| 1 9 7 5 |
![]() Svipmynd frá æfingu Austur-Þjóðverja fyrir leikinn |
Íslendingar sigra Austur-Þjóðverja í sögulegum landsleik í Laugardalnum | Leikurinn er af mörgum sagnfræðingum
talinn hafa verið upphafið að endalokum kommúnisma
í Austur-Evrópu, sem lauk með falli Berlínarmúrsins. |
| 1 9 7 5 |
![]() Íslensku varðskipin máttu sín lítils gegn tundurskeytum Breta |
Þorskastríðið Landhelgin færð út í 200 mílur |
Bretar hefja til málamynda stríðsrekstur gegn íslenskum varðskipum meðan þeir fullvissa sig um að ekkert nýtilegt sé að finna innan íslensku lögsögunnar. |
| 1 9 8 0 |
![]() Vigdís er af mörgum talin einn af okkar bestu forsetum |
Vigdís Finnbogadóttir er kjörinn forseti íslenska Lýðveldisins | Margrét Þórhildur, danadrottning,
byrjar að reykja að nýju. |
| 1 9 8 4 |
![]() Bjarni þótti harðhentur, en sanngjarn |
Bjarni Friðriksson, júdókappi, fær bronsverðlaun á Ólympíuleikunum í Los Angeles | Efasemdir um að Bjarni sé í raun Íslendingur hleypir nýju lífi í erfðafræðirannsóknir. |
| 1 9 8 4 |
![]() Jón var mikill maður á velli, fríður sýnum og orðheppinn |
Jón Páll Sigmarsson sterkasti maður heims | Jóhannesi Páli páfa ítrekað boðið að keppa á skosku Hálandaleikunum, auk þess sem Vatikaninu berast háar fjárhæðir frá Sól hf. |
| 1 9 8 5 |
![]() Allar stúlkur dreymdi um að verða eins og Hófí |
Hólmfríður Karlsdóttir er valin ungfrú Heimur | Fegurðarskyn í ríkjum 3. heimsins brenglast til frambúðar. |
| 1 9 8 6 |
![]() Þær Nancy og Raisa skemmtu sér konunglega á Naustinu meðan strákarnir funduðu |
Reagan og Gorbatsjov funda í Höfða | Reykjavík festir sig í sessi sem 'The Gay Capital of the World'. |
| 1 9 8 8 |
![]() Linda var um hríð ein glæsilegasta kona heims |
Linda Pétursdóttir er kjörin ungfrú Heimur | Hugtakið kynlífsparadís er í fyrsta sinn notað um land norðan miðbaugs. |
| 1 9 8 9 |
![]() Þjóðin býr sig undir að detta ærlega í það þann 1. mars |
Bjórinn leyfður | Carlsberg-verksmiðjunum bjargað frá gjaldþroti á síðustu stundu. |
| 1 9 9 1 |
![]() Davíð bergir á |
Landsliðið í bridge hlýtur hina eftirsóttu Bermúdaskál | Orðheppni og skemmtilegheit Davíðs Oddssonar vekja heimsathygli. |
| 1 9 9 1 |
![]() Frá vinstri: Landsbergis, Jón Baldvin |
Íslensk stjórnvöld viðurkenna sjálfstæði Lettlands | Slakari andstæðingum Íslendinga
í knattspyrnu fjölgar og þar með aukast til muna
möguleikar íslenska landsliðsins á sigri. |
| 1 9 9 7 |
![]() Bjarni staldraði stutt við í geimnum, en sá þó tunglið nokkuð greinilega |
Bjarni Tryggvason fer fyrstur Íslendinga út fyrir gufuhvolf jarðar | Framlög til geimferðaáætlunar Bandaríkjanna eru stórlega skorin niður. |
| 2 0 0 0 |
![]() Vala þykir minna um margt á Einar Vilhjálmsson, spjótkastara |
Vala Flosadóttir hlýtur bronsverðlaun í stangarstökki á Ólympíuleikunum í Sydney árið 2000 | Stangarstökk kvenna nær alþjóðlegri hylli og Íslendingar hrapa niður heimslistann í kjölfarið. |
| 2 0 0 1 |
![]() Björk og Sjón mæta til hátíðarinnar |
Björk Guðmundsdóttir og Sjón eru tilnefnd til óskarsverðlauna fyrir besta frumsamda lagið | Flestar þjóðir heims setja svani á lista yfir meindýr. |
| 2 0 0 3 |
![]() Verðlaunin munu koma ritstjórninni algerlega í opna skjöldu |
Bókaútgáfan Baggalútur birtir heimsbyggðinni sannleikann um sögu Íslands | Ritstjórnarmeðlimir hljóta vefverðlaun Nóbels. |