Frétt — N?mi Fannsker — 4. 9. 2006
Kunnur rapphljómlistar­maður á Íslandi
Flensburg flutti af innlifun rappsmellinn geysivinsæla Lassen Sie mich aufgebomben, fyrir ljósmyndara Baggalúts.

Hinn kunni austurríski rappari og kvikmyndaleikari DJ-Flensburg er staddur hér á landi í stuttri heimsókn. Flensburg þarf vart að kynna fyrir unnendum austrurrískrar hip-hop menningar, en hann hefur gefið út fjölda hljómplatna, m.a. hina geysivinsælu Flensburg Im Nachbarschaft mit seine geile Hündinen, sem seldist í hundruðum eintaka víðsvegar um Evrópu.

Meðal þeirra kvikmynda sem DJ-Flensburg hefur leikið í má nefna pólsk-austurrísku spennumyndina Guten Tag Bitch og spennutryllinn Mord mit meine Homies.

Herbergi óskast

Reyklaus varhumar á þrítugsaldri óskar eftir að leigja herbergi með aðgangi að baði. Skilvísum greiðslum heitið.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: