Ofurhetja: Gneistinn
Rétt nafn: Kristinn Gunnarsson
Dagvinna: Klæðskeri
Hæð: 161 cm
Þyngd:50 kg.
Ofurkraftur: Rafleiðandi líkamsvessar (hráki, sviti o.fl.), ofurstyrkur
Kringumstæður umbreytingar: Norðurljós á himni
Helstu afrek: Lýsti leið björgunarsveitarmanna upp Ártúnsbrekku er rafhlöður tæmdust í aftakaveðrinu mikla árið 1998 og framleiddi 260 kg. af áli í baðkeri sínu í verkfalli álverkamanna árið 1982
Einkunnarorð: Stanslaust stuð!
Veikleiki: Hálfleiðarar
Ofurhetja: Ofur-ölvi
Rétt nafn: Haraldur Hallgrímsson
Dagvinna: Almenn öryggisgæsla
Hæð: 178.5 cm.
Þyngd: 87 kg.
Ofurkraftur: Meistari í dulargervum (umbreytill), ofurstyrkur
Kringumstæður umbreytingar: Veruleg áfengisneysla
Helstu afrek: Stökkti á braut hinum illræmda Melkíori á því herrans ári 1987 og skoraði herra Karl Sigurbjörnsson, biskup, á hólm. Biskup skoraðist undan.
Einkunnarorð: Aldrei að víkja! Skál!
Veikleiki: Áfengi, konur og kvenfólk
Ofurhetja: Doktor Benzínó
Rétt nafn: Aðalsteinn Aðalsteinsson
Dagvinna: Menntaskólakennari
Hæð: 140 cm
Þyngd: 120 kg.
Ofurkraftur: Getur talað við fugla og fáein spendýr, ofurstyrkur
Kringumstæður umbreytingar: Ókunnar
Helstu afrek: Taldi háhyrninginn Keikó af sjálfsvígi árið 2000 og kenndi tjaldinum Valgeiri grunnatriði hinnar almennu afstæðiskenningar.
Einkunnarorð: Maður, tunga, fugl!
Veikleiki: Brauðmylsna (tefjandi áhrif)
Ofurhetja: Herra lím
Rétt nafn: Einar Vésteinsson
Dagvinna: Spámiðill og heilari
Hæð: 120 cm
Þyngd: 95 kg.
Ofurkraftur: Seytir sjálfklístrandi/-límandi líkamsvessum, ofurstyrkur
Kringumstæður umbreytingar: Leiðsludá
Helstu afrek: Límdi niður gólfdúk af linoleum-gerð á broti úr sekúndu í anddyri Höfða, vegna leiðtogafundarins 1986 og skeytti saman varðskipinu Óðni eftir ásiglingu bresku freygátunnar Illostrious III árið 1971.
Einkunnarorð: Sé það límt; tollir það!
Veikleiki: Terpentína
Ofurhetja: Herra femin.is
Rétt nafn: Óþekkt
Dagvinna: Engin
Hæð: Óþekkt
Þyngd: Kjörþyngd
Ofurkraftur: Skilur konur, ofurstyrkur
Kringumstæður umbreytingar: Þungt höfuðhögg
Helstu afrek: Ræddi á léttum nótum við Hólmfríði Karlsdóttur árið 1986 og var gerður heiðursfélagi í saumaklúbbnum "Lykkjunni".
Einkunnarorð: Konur eru vinir mínir!
Veikleiki: Jane Austin
Ofurhetja: "Ósýnilegi" maðurinn
Rétt nafn: Örvar Knútsson
Dagvinna: Öryrki
Hæð: Engin
Þyngd: Engin
Ofurkraftur: "Ósýnilegur", ofurstyrkur
Kringumstæður umbreytingar: Við inntöku undralyfsins "benelin"
Helstu afrek: Tókst að fela sig fyrir björgunarsveitinni Stefáni (þrátt fyrir leitarhunda) árið 1996
Einkunnarorð: Sjón er sögu ríkari!
Veikleiki: Speglar