— GESTAPÓ —
Vlad afhjúpaður!!!
» Gestapó   » Baggalútía
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 31/5/08 21:20

Í ljóði sínu Búlúlala afhjúpar Steinn Steinarr raunheimanafn Vladimirs Fuckov. Skamm Steini!

Búlúlala

Abbeseníukeisari heitir Negus Negusi,
og Negus Negusi segir: Búlúlala.
Öllum mönnum, sem íhuga málstað ríkisins,
finnst unun að heyra Negus Negusi tala.

Og í hreinskilni sagt eru allir óvinir ríkisins,
sem ekki hlusta á Negus Negusi tala.
Ég er Negus Negusi, segir Negus Negusi,
ég er Negus Negusi. Búlúlala.

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Grágrímur 31/5/08 21:23

Jahá, ein huxun kemur upp í hugann við lestur þessa ljóðs... á hverju var maðurinn og hvar getur maður fengið smakk?

Einfættur Gestapói númer 2. • Atvinnuátfíkill
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Nermal 31/5/08 21:47

Var Steinn kanski sýruhaus?

. Eigandi Bíkinieyja. Galdramaður svefnherbergisins.Rugludallur frá náttúrunar hendi. Páfi. Einkastrippari Næturdrottningarinar
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 31/5/08 21:56

‹Hrökklast afturábak og hrasar við›

‹Setur Stein Steinarr á listann ógurlega yfir óvini ríkisins›

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Günther Zimmermann 31/5/08 22:03

Mér finnst að ríkisendurskoðun þurfi að athuga það ef forseti vor þiggur einnig laun keisara í Abbisíníu. Hagsmunaárekstrar gætu átt sér stað.

‹Velti vöngum (um)›

Antiqvarius Imperii BACCALVTII - Vörzlumaður Fjársjóðskammers forsetaembættisins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hlewagastiR 31/5/08 23:09

Negus þessi mun eiga að tákna Haile Selassie, keisara og einræðisherra í Eþjópíu sem einhver annar einræðisherra tók af lífi einhvern daginn.

Fyrir krýningur hét keisari þessi hvorki Haile Selassie né Negus Negusi, heldur Tafari Makonnen. Hörðustu áðdáendur hans litu á hann sem Messías endurborinn og stofnuðu kirkju hans, Ras Tafari hreyfinguna. Ras þýðir herra eða tignarmaður. Frægasti fylgjandi Rastafari trúarbragðanna var Bob heitinn Marley og kannast flestir við kenningar þeirra í gegn um hann.

Hvernig Vladimir Fuckov tengist málinu skil ég ekki.

Þetta ritar ósköp úldið, aldið skar. • er falskonungur forðum var.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Þarfagreinir 31/5/08 23:09

Steinn Steinarr var sykurfíkill. Þetta vita nú allir sem eitthvað vit hafa á bókmenntasögu.

Greifinn af Þarfaþingi • Fullur símamálaráðherra • Yfiryfirheyrslumeistari Rannsóknarréttar Skoffínsins • Sjálfskipaður últraséntilmaður og öðlingur
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst

Aðalsteinn Kristmundsson var bróðir Hjartar sem var skólastjóri í Breiðagerðisskóla og var fyllibitta eins og ég og bróðir hans

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
krossgata 31/5/08 23:25

Mér finnst skiljanlegt að Vlad setji Stein á listann ógurlega. Vladimir er fallegra nafn en Negus Negusi.

Kvenskörungur forsetaembættisins. Hlerari við HB. Sporrekjandi ríkisins. Tilnefnd: Mesti laumupúkinn 2007 Gul ‹Drepur tímann› Ef þú getur lesið þetta ertu of nálægt. Laumuhluti: ÞráðurINN fundinn! 10. feb.. og annar 4. maí
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Salka 31/5/08 23:42

Grágrímur mælti:

Jahá, ein huxun kemur upp í hugann við lestur þessa ljóðs... á hverju var maðurinn og hvar getur maður fengið smakk?

Hann var á lýsi í síldarbræðslu.
Sú gamla sagði mér að Steinn hafi ekki verið mikill fyrir mann að sjá og sat einna helst uppá heitum mjölpokunum og horfði í gaupnir sér.

Næturdrottning á vinstri væng Teningahallarinnar leggur til að (gulu) grænu aparnir verði límdir upp á fremstu síðu. - Alveg prýðileg Baggalýta, af lýti að vera -
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 1/6/08 13:36

Günther Zimmermann mælti:

Mér finnst að ríkisendurskoðun þurfi að athuga það ef forseti vor þiggur einnig laun keisara í Abbisíníu. Hagsmunaárekstrar gætu átt sér stað.

‹Velti vöngum (um)›

‹Hrökklast afturábak og hrasar við›

Í Baggalútíu er engin ríkisendurskoðun og þar þarf enga ríkisendurskoðun. Allir ráðamenn eru strangheiðarlegir og auk þess eru engir hagsmunaárekstar til því hagsmunir ráðamanna og hagsmunir ríkisins eru einn og sami hluturinn.

„Ríkið, það erum við“ ‹Ljómar upp›

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Wayne Gretzky 1/6/08 13:39

Vladimir Fuckov mælti:

Þú notaðir ekki þjerun.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 1/6/08 13:42

Vjer vildum að augljóst væri að eigi vorum vjer að tala um oss eingöngu heldur alla ráðamenn Baggalútíu. Var hjer því um viljaverk að ræða en eigi alvarlega yfirsjón.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hvurslags 1/6/08 14:48

Mikið er ég feginn að búa enn þá í ríki þar sem leiðtoginn talar í pluralis majestatis.

Yfir kalda sítrónu, einn um nótt ég bauva.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 1/6/08 21:12

‹Vjer ljómum upp›

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hexia de Trix 31/8/08 23:05

‹Lítur inn og verður hlessa›
Átti ekki að afhjúpa hér styttu af forseta vorum?

Alma Mater Baggalútíu • Kakómálaráðherra • Yfirbókavörður Baggalútíu • Forstöðumaður Bóka- og skjalasafns Baggalútíu
» Gestapó   » Baggalútía   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: