Ég hef veitt því athygli að algengasta upphrópunin á Gestapó þetta misserið virðist vera hannesun! hannesun! Menn ganga hart fram í að fordæma hver annan fyrir að hannesa hinn og þennan textann eða höfundinn. Jafnvel fyrir að hannesa aðrar hannesanir.
Ég legg til að slíkar athugasemdir fái heitið kressun og óska ykkur kressurum góðrar kressunar þannig að hannesararnir fái hannesunina sína aftur útkressaða með athugasemdum.
Verið þið svo sæl og kressuð.

Ég býst við að þetta sé ættað frá Helgu Kress. Kressun er eiginlega létt-hannesun, diet-hannesun. Hannesun er þegar einungis gæsalappir gleymast. Kressun er þegar merkingin er sú sama en orðalagi breytt.
Svoleiðis. Ég fylgist ekkert með svona málum. Mér er bara svo svakalega sama.
Orðið varð til í hausnum á mér en það er ekki þar með sagt að það hafi ekki orðið til í hausum margra annarra áður.
Merkingin er að sjálfsögðu að koma upp um hannesun. Ef Helga læsi skýringu Ívars myndi hún snúa sér við í gröfinni og er þó hvorki dauð né grafin.
Þú átt sumsé við að við eigum að kressa hannesanir annarra?
Nei, hannesa kressanir annarra, auðvitað.
Þettað er nú meiri súpan þannig að vjer getum eigi verið hjer lengur.
Orðið varð til í hausnum á mér en það er ekki þar með sagt að það hafi ekki orðið til í hausum margra annarra áður.
Merkingin er að sjálfsögðu að koma upp um hannesun. Ef Helga læsi skýringu Ívars myndi hún snúa sér við í gröfinni og er þó hvorki dauð né grafin.
Já, eins og borvél!
Þú átt sumsé við að við eigum að kressa hannesanir annarra?
Vitanlega maður!
Mér lýst nú betur á hugmynd Gretzky, þótt ótrúlegt megi virðast.
Hvenær ætlar þú þá að útkressa mína hannesun? Hlakkar svo óskaplega til að súg iðar hreinlega í skinninu
Kressum hannesaðar kressanir Hannesa!
Hannesast á Hvæsa
Fyrst þið eruð komnir í þykjustuleikinn:
Þykist gefa öllum þykjustukakó í þykjustunni
Þykist
Fyrst þið eruð komnir í þykjustuleikinn:
Þykist gefa öllum þykjustukakó í þykjustunni
þykist þykjast að þykjast að vera að taka þykjustukakóið í þykjustunni af þykjustuhlégesti
Ég má til með að þakka Hlégesti að hafa fundið upp á þessu ágæta hugtaki. Það mætti jafnvel hugsa sér að kressun yrði kennd sem aukagrein uppá 30 einingar, eða í það minnsta sem námskeið í bókmenntafræði.
Þykist vera voða fúll yfir því að hér sé bara boðið upp á kakó en ekkert súkkulaði. Súkkulaði er langferðabíll meðan kakó er bara rúta