Já það getur verið erfitt að finna. Eins og húna amma mín sagði alltaf: ,,Sá sem leitar bara að sjálfum sér finnur ekki aðra".
Sverfill Bergmann, ert þú að reyna að komast á topp 10 yfir fjölda innleggja, eða ertu bara svona rosalega andríkur þessa stundina?
Já og þá er auðvitað rétt að láta gamminn geysa bæði í bundnu og óbundnu máli og fyrst þú ert í svona miklu stuði finnst mér ekki úr vegi að þú takir Tony Clifton til bæna. Honum veitir ekki af smá ráðningu.
Aldrei að vita hvað gerist eftir næstu kaffikönnu sem ég slurka í mig af miklum móð þessa stundina....
Fær andstyggilegt svitakast og bítur í tungu sína...
Ætlarðu ekkert að skila kaffikönnunni sem þó fékkst lánaða á Eiðum ´64?
Hún er svo illa farin að ég verð að splæsa í nýja...ekki hægt að skila svona beyglaðri könnu.
Hringir í EXPERT og pantar nýja könnu af Ufesa gerð...
Svona svona drengir mínir.. þið megið báðir komast inn á topp 10 ef þið verðið bara rólegir í smá stund!