Erum það bara vér eða eru engar myndir í myndasafni voru?
Hvaða bullsetning er nú þetta?
Á alnetinu eru óteljandi myndir, og á skráningarsíðunni eru leiðbeiningar um hvernig fólk getur bjargað sér ef ekki er til mynd sem viðkomandi líkar. Það hlýtur að gilda líka ef engin mynd er í safninu.
Er Enter óendanlega þakklát fyrir að hafa sett sína mynd í safnið, henni hefði aldrei dottið í hug að velja hana sjálf.
Enter er þó eitthvað latur við að kíkja í pósthólfið sitt. Ég sendi honum skeyti fyrir löngu, löngu síðan þess efnis að ég vildi breyta einkennismyndinni hjá mér í þá upprunalegu, en hef ekki fengið neitt svar. dæsir
Eða færa brennifórn, er ekki upplagt að fara að grilla núna?
Er ekki einhver óvinur ríkissins í haldi sem hægt væri að henda á grillið?
Já, eða lesbískur óvinur ríkisins, svona til öryggis?
Þarfi væri eflaust tilbúinn að skutla honum á grillið eftir herfilegt tap?
Býður sig fram til að leita að óvinum ríkisins? Hvar er Texi núna?
Nefndi einhver harðar og miskunnarlausar aðgerðir gegn óvinum ríkisins ? Ljómar upp og kemur með nokkrar herþotur
Við vorum að hugsa um að skella þeim á grillið, sem brennifórn til Enters fyrir mynd hvurslags. Er það ekki gráupplagðar aðgerðir gegn óvinunum?
Ljómar upp