Hvítur....og með yfirbyggingu?! Ég vissi það!!!!
Sá efri er nú án yfirbyggingar ...
Hvar er efasemdamörðurinn?
Glæsilegt....bara glæslegt! Fer í alvarlegt þáþráarsjokk og tárast
Sá efri sýnist mér nú ekki hafa verið upprunalega hvítur. Hin myndin er sennilega fölsun. Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Mér finnst þessi gamli miklu meiri karakter heldur en þessi með skófluna.
Uppgötvar að klukkan er 4 á laugardagsnótt og hann er að skoða myndir af traktorum...
Hvar hafa dagar lífs míns lit sínum glatað?
Hvað meinarðu, Grágrímur? Klukkan er rétt að verða hádegi. Glottir eins og fíflið sem hann er
Bull er þetta í ykkur drengir, hún er rétt um 9 að kveldi, lang hentugasti tíminn til að skoða myndir af dráttarvélum. Það er mín reynsla, allavegana...
Hvenær er ekki hentugur tími til að skoða dragþórumyndir? Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Óheppilegur tími getur til að mynda verið í miðri fundarsetu, ellegar við akstur.
Ellegar þegar konan kemur að þér við sjálfmjólkun.
Eru ekki komnar nýtísku mjaltavélar fyrir mjólkunina.