Þó ég verði í borginni í kvöld þá verð ég svo klossupptekin við að drekka með einhverju ókunnugu fólki að ég verð því miður að afþakka boðið. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Hefði komið ef ég væri ekki fastur í Flensburg með einhverju ókunnugu fólki sem ég er að fara að hitta á eftir.
Tilviljun?
Maður spyr sig. Í hvaða "borg" er er Regína? Flensuborg?
Nei, laus við flensuna.
Annars var ég að velta því fyrir mér í sturtunni áðan hvernig ég gæti lagt þessa óvini ríkisins. Ég er sko að sækja um embætti og er að reyna að koma mér innundir hjá ákveðnum aðila. Ljómar upp Alltaf að nota tækifærin.
Innundir?
Ég sé að þér er alvara með að verða forsetafrú.
Auðvitað er mér alvara. Og það er alveg óþarfi að lesa einhverjar duldar meiningar úr því sem ég skrifa.

Les duldar meiningar út úr skrifum Regínu
Það er óljóst hvort við hjúin getum sótt þenan gjörning. Það væri þá annað okkar sem yrði fulltrúi okkar beggja.
Ég segi rétt eins og Útvarpsstjóri, allt eftir næsta mánudag og ég mæti.

Já ég verð eiginlega að styðja ykkur líka.
Eftir mánudaginn verð ég töluvert lausari en ég er nú.
Þið um það. Starir þegjandi út í loftið Þá verð ég bara að detta í'ða í kvöld og á mánudag.
ÉG fer Bara á pólska barinn í Hafnarfirði!
Æji, fyrirgefið mér. Ég veit ekki hvað ég var að hugsa.
Það er bara um tvennt að velja. Henda þræðinum eða nýta hann i eitthvað annað.
Það mætti sosum nota hann í að skipuleggja næsta hitting en þá þyrfti auðvitað að breyta nafninu því sá hittingur yrði væntanlega ekki óskipulagður.
Nei, það er ómögulegt. Mikið betra að stofna nýjan.
Nær væri að ræða um hannyrðir hér.
Mér finnst góbelín frekar leiðinlegt spor, en afturstingur kemur oft skemmtilega út.
Mér hefur fundist lykkjuspor henta vel til að sauma út nöfn í handklæði. Ljómar upp
Harðangur og klaustur er það eina sem blívar í dag.
Er ekki slétt og brugðið notað í hannyrðir? Klórar sér í höfðinu

Ég gæti kennt þér að prjóna. Vonandi ertu samt ekki örvhentur.

Ég gat einu sinni prjónað á DBS svo það ætti að vera létt verk að kenna mér.
Er ekki slétt og brugðið notað í hannyrðir? Klórar sér í höfðinu
Jú Ljómar upp og flissar Áttu sokka?
HVAÐA TÍMGUNARSJÚKI TÍMAVJELARRÆNINGI STAL TÍMAVJELINNI OG NOTAÐI HANA TIL AÐ KOMA OSS Í SAMHLIÐA VERULEIKA SEM ER ÖÐRUVÍSI EN SÁ VERULEIKI SEM VJER VORUM Í Í DAG ?! Í ÞEIM VERULEIKA VAR VERIÐ AÐ RÆÐA ALLT ANNAÐ MÁLEFNI HJER.
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sjer