Hér hef ég hugsað mér að skella inn lista, einsog til dæmis hvað er gott að hafa með sér í útilegu ef maður er í tjaldi, gott er að geta haft svona lista fyrir þá sem eru ekki duglegir að skipuleggja sig.
Nú er ég komin í gírinn að gera mig klára fyrir stuttar heimsóknir í sumarbústaði hér og þar í sumar og gott er að geta farið með stuttum fyrirvara og haft allt til taks á einum stað.
SUMARBÚSTAÐARTÉKKLISTINN :
Ein taska sem inniheldur:
Naglaklippur
Hárbursti og teygjur
Rúmföt
Handklæði
Sundföt
Tannbursti
Tannkrem
Sjampó/baðsápa
Ullarsokkar/inniskór
Náttföt og nærföt.
Baby whipes.
Sjúkrapúði eða taska.
Kassa af blút og kellingu sem er til í allt! Ljómar upp
Þú gleymdir að þú þarft að hafa listann með þér í sumarbústaðinn, annars veistu ekki hvað þú átt að taka með heim aftur.
Þú gleymdir að þú þarft að hafa listann með þér í sumarbústaðinn, annars veistu ekki hvað þú átt að taka með heim aftur.
Ég prenta þetta út þegar þar að kemur Texi minn.
Hvers konar sumarbústaðaferð er það sem krefst ekki daglegra klæða heldur einúngis náttfata, nærfata og skótaus? Gengurðu þá nakin um á daginn?
Þú gleymdir að þú þarft að hafa listann með þér í sumarbústaðinn, annars veistu ekki hvað þú átt að taka með heim aftur.
Þá þarf listinn að vera á sjálfum sjer Ljómar upp.
Hvers konar sumarbústaðaferð er það sem krefst ekki daglegra klæða heldur einúngis náttfata, nærfata og skótaus? Gengurðu þá nakin um á daginn?
Ég er að sjálfsögðu í fötunum sem ég kem í, sauður !
Núnú, ekki er það löng ferð ef þú þarft ekkert til skiptanna.
Núnú, ekki er það löng ferð ef þú þarft ekkert til skiptanna.
Enda nefndi ég það strax í upphafi að ég væri að tala um styttri sumarbústaðarferðir.
Góður listi. Ég vildi bæta ínn hnif, eldspýtur og snæri.
Góður listi. Ég vildi bæta ínn hnif, eldspýtur og snæri.
Ef staðalímyndin af Finnum er rétt, þá þarftu hnífinn til að slást við drykkjufélaga þína, eldspýturnar til að kveikja upp í gufubaðinu og snærið til að hengja þig þegar bömmerinn hellist yfir. En ég tek það skýrt fram að ég er á engan hátt að fullyrða að þú sért dæmigerður Finni. Glottir samt eins og fífl
Ehmmm... þetta þrennt -hnif, eldspýtur og snæri- er gott að hafa alltaf í útilegu og svipuðum kringumstæðum. En ef maður ætlar að hafa svona þjóðlega dagskrá og Huxi leggur til, þá getum við eiginlega sleppt listanum hennar Dulu og tekið einn kassa af vodka í staðinn.
Ekki gleyma að taka teningana með þér Dula. Svo sakar ekki að stinga með einni bók og sólaráburð já og eða regnhlíf.
Og ef þú hefur með þér börn þá er ekki vitlaust að skella með einhverju dóti, til að stytta þeim stundirnar í bílnum.
Góður listi. Ég vildi bæta ínn hnif, eldspýtur og snæri.
Ef staðalímyndin af Finnum er rétt, þá þarftu hnífinn til að slást við drykkjufélaga þína, eldspýturnar til að kveikja upp í gufubaðinu og snærið til að hengja þig þegar bömmerinn hellist yfir. En ég tek það skýrt fram að ég er á engan hátt að fullyrða að þú sért dæmigerður Finni. Glottir samt eins og fífl
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Það þarf að hafa með nokkur vel valin krossgátublöð og rauðvín. Þá er maður nú fær í flestan sjó.
Ljómar upp