Góða kvöldið gott fólk . Hér ráfa ég um einmanna einfeldingur , ansi feiminn og vinasnauð
Þú ert eðal Offari San öndvegissúla Baggalúts hef ég heyrt
Skondið.
Ég er nebbleag líka frekar ófríður en aðalega ófrýnilegur.
Starir þegjandi út í loftið
En hví er ó-ið smátt, en eigi capitalis?
Og greinamerkjasetning þín sýnir að þú hefir lært að vélrita á ritvél. Vel er það.
Ef eitthvað að marka myndina, þá ertu alls ekki ófríður.
Auðvitað Gunterinn minn er fyrsti stafurinn í nafninu mínu líka lítilfjörlegur og ég sjálf . Þú ert glöggur sé ég .
áttu kærustu Gunterinn krúttið ? Mig langar líka að vita grjónið mitt og pungagras hvort þú sért með saumamaskínu og uppþvottavél og gólftusku og þurkara og þvottavél og stígvélaþræl elskan , ef ekki þá er ég á lausu darlyngurinn minn .
Nei, nú fer ég hjá mér!
Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Mig langar í þennan hundraðkall. Tekur frekjukast
Safnar vöxtum og lætur skipta sér
Nau, nau! Nýliði? Má jég eiga hana?
Góða kvöldið mín kæra ófríður, jég er Sloppur og sjé Gestapóum eftir beztu getu fyrir Sloppum, svo enginn blygðist sín.
Þangað til þú færð á þig mynd þarftu að vera í þessum Rjéttir nýliðanum gulan NýliðagúmmíSlopp, síðan skulum við tala um eitthvað varanlegra. Ljómar upp
Velkomin á Gestapó. Það er bara allt að fyllast af nýliðum.
Velkomin á Gestapó. Það er bara allt að fyllast af nýliðum.
Ég held að það hafi sér frekar einfalda skýringu. Glottir eins og fífl
Ég vil ekki trúa því að ég sé ófríður, en kannski ekki fallegur.
En, afhverju er allt að fyllast af nýliðum? Er eitthvað sem ég á að vita?
Það ætti að koma í ljós á mánudaginn, ef B. Ewing lofar.
Góða kvöldið gott fólk . Hér ráfa ég um einmanna einfeldingur , ansi feiminn og vinasnauð
AF HVAÐA KYNI ERTU?!
Mér sýnist þú ekki vera alveg viss miðað við það hvernig þú skrifar!
Hvað er eitt lítið ó á milli vina? Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Þessi vesalingur hefur ekkert sést eftir sumarfrí. Ætli hann sé búinn að gleyma okkur?