Eitthvað sem þú eldar?
Júh. Kvarg er skyr. Jarmi var á undan. Nú þarf Hvæsi bara staðfesta það.
Kvarg er reyndar frábrugðið skyri að því leitinu að í það eru notaðir súrmjólkurgerlar í stað skyrgerla.
Því mætti kanski segja að kvarg væri "kreppuskyr" því einsog sagt er við útlendingana, "you have to have skyr to make skyr"
En Jarmi fær rétt fyrir "Gúggl" svarið...
No perkele... nú vitum við það. Kvarg eða rahka eins og við segjum er svo ansi likt skyri en ekki alveg eins, og nú veit ég af hverju svo er. Kærar þakkir, Hvæsi, fyrir þennan fróðleiksmola!
En Jarmi fær rétt fyrir "Gúggl" svarið...
Hvað meinar þú með þessu?
En Jarmi fær rétt fyrir "Gúggl" svarið...
Hvað meinar þú með þessu?
Ég skil það sem svo að hann væni þig um að hafa gúglað svarið. reynir að etja Hvæsa gegn Jarma
En Jarmi fær rétt fyrir "Gúggl" svarið...
Hvað meinar þú með þessu?
Ég skil það sem svo að hann væni þig um að hafa gúglað svarið. reynir að etja Hvæsa gegn Jarma
Sjáum hvað sá litblindi segir.
Kargur á kollgátuna.
Hættu nú að drepa leikinn, koddu með spurningu.
Það er ekki spurning.
Kargur á kollgátuna.
Hættu nú að drepa leikinn, koddu með spurningu.
Af hverju ætti ég að gúggla þessu? Sérstaklega ef við höfum í huga að þetta er selt hér í Danmörku í vel flestum stórmörkuðum.
Ég tek mér það bessaleyfi að koma með eina létta.
Hvað þýðir það að vera í pontinu?
Ahh, Vímus minn, þetta er líka úr sjómannamáli, ef ég man rétt þá er pontið gangurinn meðfram síðunni, altso brúnni. Þar var lifrarfötum staflað og var sagt að sá sem staflaði væri í pontinu.
Ekki ætla ég samt að fullyrða þetta, það má meira en vera að ég sé að rugla. Mig bara minnir þetta endilega.
Ekki var það alveg rétt.
Nú veit ég þetta ekki, en til að láta leikinn ganga áfram þá segi ég að í pontinu er maður á brúarvænginum til þess að vera í útkikki. En þetta er hreinlega ágiskun sem byggist á upprifjun Ratta.
Ég get svarið það, oft hef ég heyrt þetta, en ég er algerlega tómur.....