Nei.
Mér finnst nú nálablók vera fínt orð yfir lélegann lækni eða tattúverara
Sjúkrakassinn?
nei
Netaviðgerðarnálin sjálf?
Er það grænjaxlinn um borð, sá sem er settur í nálakörfuna, þ.e. þræða nálarnar?
Er það grænjaxlinn um borð, sá sem er settur í nálakörfuna, þ.e. þræða nálarnar?
Einmitt það sem ég vildi sagt hafa. Blókin er grænjaxlinn um borð.
Er það grænjaxlinn um borð, sá sem er settur í nálakörfuna, þ.e. þræða nálarnar?
Einmitt það sem ég vildi sagt hafa. Blókin er grænjaxlinn um borð.
Sjaldnast er grænjaxlinn settur í að laga netin sjálf, heldur eru það vanari menn sem það gera. En að vera settur í nálakörfuna er að jafnaði starf fyrir óvana.

Þarna held ég að þú sért með það rétta Rattati.
Blókin um borð gæti einmitt verið sú sem þræðir nálarnar fyrir netagerðarmeistaranna. Netamenninna eins og þeir eru kallaðir.
Hárrétt hjá þér Ratti!
Ég var einusinni til sjós með einum sem hafði meira að segja náð í endann á árabáta og seglskipaútgerðinni. Lærði margt af honum. Þar með talin blótsyrði sem að komu mér virkilega á óvart.
Kem með spurningu rétt á eftir.
Ég ætla að stela réttinum.
Hvað er maggadúlla?
Það er ekki enn komið svar við þessu.
Er þetta kökukefli?
Nei. Íslensk orðabók segir - þar sem Hexia lætur ekki sjá sig og enginn hefur vitað þetta - að maggadúlla sé smjörlíki. Lélegt smjörlíki nánar tiltekið. Ég hef reyndar aldrei heyrt þetta orð, en það sannar nú ekki mikið.
Vilt þú Regina ekki spyrja eitthvað?
Ég er algerlega tómur um þessar mundir. Ég gef frá mér réttinn.